English Icelandic
Birt: 2021-10-18 18:34:56 CEST
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: S&P staðfestir óbreytt lánshæfismat Landsbankans

Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið S&P Global Ratings birti í dag skýrslu um lánshæfismat Landsbankans þar sem fram kemur að lánshæfismati skuldbindinga til lengri tíma er haldið óbreyttu í BBB/A-2 með stöðugum horfum.

Styrkleikar Landsbankans að mati S&P liggja í sterkri eiginfjárstöðu, háu vogunarhlutfalli, stöðugum og traustum rekstri með hárri markaðshlutdeild ásamt takmarkaðri endurfjármögnunarþörf á markaði.

Nánari upplýsingar eru í skýrslu S&P sem er aðgengileg á vef bankans, www.landsbankinn.is/lanshaefismat.