English Icelandic
Birt: 2021-09-20 19:25:00 CEST
Eimskipafélag Íslands hf.
Innherjaupplýsingar

Eimskip: Upplýsingar varðandi afkomu þriðja ársfjórðungs

Samkvæmt stjórnendauppgjöri fyrir júlí og ágúst sem nú liggur fyrir, ásamt áætlun fyrir september, lítur út fyrir að EBITDA af rekstri á þriðja ársfjórðungi 2021 verði umtalsvert betri en á sama ársfjórðungi síðasta árs.

Áætlað er að EBITDA á þriðja ársfjórðungi verði á bilinu 33,2 til 36,2 milljónir evra samanborið við 21,4 milljónir evra á sama ársfjórðungi síðasta árs.  Að teknu tilliti til væntra afskrifta má gera ráð fyrir að EBIT fjórðungsins verði á bilinu 20,1 til 23,1 milljónir evra samanborið við 10,4 milljónir evra á þriðja ársfjórðungi síðasta árs.

Gangi þetta eftir verður um umtalsverða hækkun á rauntölum úr rekstri milli tímabila að ræða og má þá gera ráð fyrir að afkoma félagsins á árinu 2021 verði nær efri mörkum uppfærðrar afkomuspár sem gefin var út 19. ágúst sl. Framangreint byggir á rauntölum úr rekstri fyrstu sex mánaða 2021, stjórnendauppgjörum fyrir júlí og ágúst sem nú liggja fyrir, núverandi áætlun fyrir september og rekstrarspá fyrir það sem eftir lifir ársins.

Þriðja ársfjórðungi er ólokið og geta niðurstöður tekið breytingum af þeim sökum sem og í uppgjörsferlinu.

Eimskip birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2021 eftir lokun markaða þriðjudaginn 9. nóvember.

Nánari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs í síma 825-3399 eða á investors@eimskip.is.