Icelandic
Birt: 2021-09-09 19:39:36 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

REITIR: Niðurstaða skuldabréfaútboðs 9. september 2021

Lokuðu útboði Reita fasteignafélags hf. á skuldabréfum þann 9. september 2021 er lokið. Boðin voru til sölu skuldabréf í verðtryggða flokknum REITIR150527.

Alls bárust tilboð að nafnvirði 4.080 m.kr. og var ákveðið að taka tilboðum að nafnvirði 2.880 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 1,20%. 

Fossar markaðir höfðu umsjón með sölu skuldabréfanna. 

Gjalddagi áskrifta og afhending bréfa er fyrirhuguð fimmtudaginn 23. september næstkomandi og óskað verður eftir því að hin nýju skuldabréf verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í kjölfarið. 

Grunnlýsing félagsins, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreindra skuldabréfa verða birt á vefsíðu félagsins, reitir.is/fjarfestar. Tilkynningar sem Reitir fasteignafélag hf. birtir í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins. 

Nánari upplýsingar veita Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, netfang: einar@reitir.is, sími 669 4416, og Matei Manolescu, Markaðsviðskipti, Fossar markaðir, netfang: matei.manolescu@fossarmarkets.com, sími 522 4008.