Alma íbúðafélag hf.: Útgáfa á víxlumAlma íbúðafélag hf.: Útgáfa á víxlum Alma íbúðafélag hf. hefur lokið sölu á víxlum í tveimur flokkum. Víxlarnir eru óveðtryggðir til 2ja og 4ja mánaða. Seldir voru víxlar að nafnvirði 600 m.kr. á 4,95% vöxtum til 2ja mánaða og að nafnvirði 500 m.kr. á 5,25% vöxtum til 4ja mánaða. Greiðslu- og uppgjörsdagur er þriðjudaginn 1. mars 2022. Arctica Finance hf. hafði umsjón með sölu víxlanna. Nánari upplýsingar veitir: Sigurður Rúnar Pálsson, fjármálastjóri, í síma 848 5290 eða sigurdur@al.is
|