Leiðrétting: Heildareftirspurn og samþykkt tilboð eru leiðrétt.
Íslandsbanki hf. hefur lokið útboði á nýjum flokki almennra skuldabréfa (e. senior preferred) ISB 36 1114 GB fyrir samtals 4.000 m.kr.
Heildareftirspurn í útboðinu var 5.600 m.kr. á bilinu 3,50% til 4,40%. Samþykkt tilboð voru samtals 4.000 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,83%.
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 14. nóvember 2024.
Umsjónaraðili útboðsins var Verðbréfamiðlun Íslandsbanka.