Rekstur fyrstu níu mánaða ársins 2017
Rekstrartekjur HB Granda hf. á fyrstu níu mánuðum ársins 2017 námu 158,8 m€, samanborið við 152,5 m€ árið áður. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 32,3 m€ eða 20,3% af rekstrartekjum, en var 40,1 m€ eða 26,3% árið áður. Áhrif fjáreignatekna og fjármagnsgjalda voru neikvæð um 3,7 m€, en voru neikvæð um 1,9 m€ á sama tíma árið áður. Áhrif hlutdeildarfélags voru jákvæð um 3,1 m€, en voru jákvæð um 3,0 m€ árið áður. Hagnaður fyrir tekjuskatt var 21,8 m€ og hagnaður tímabilsins var 17,3 m€.
Efnahagur
Heildareignir félagsins námu 500,8 m€ í lok september 2017. Þar af voru fastafjármunir 405,0 m€ og veltufjármunir 95,8 m€. Eigið fé nam 249,5 m€, eiginfjárhlutfall í lok september var 49,8%, en var 55,6% í lok árs 2016. Heildarskuldir félagsins voru í septemberlok 251,3 m€.
Sjóðstreymi
Handbært fé frá rekstri nam 13,2 m€ á tímabilinu, en nam 14,5 m€ á sama tíma fyrra árs. Fjárfestingarhreyfingar námu 41,6 m€. Fjármögnunarhreyfingar voru jákvæðar um 31,7 m€. Handbært fé hækkaði því um 3,3 m€ á tímabilinu og var í lok september 10,6 m€.
Meginniðurstöður færðar til íslenskra króna
Séu niðurstöður rekstrarreiknings reiknaðar til íslenskra króna á meðalgengi fyrstu níu mánaða árins 2017 (1 evra = 119,22 kr) verða tekjur 18,9 milljarðar króna, EBITDA 3,9 milljarður og hagnaður 2,1 milljarðar. Séu niðurstöður efnahagsreiknings reiknaðar til íslenskra króna á gengi 30. september 2017 (1 evra = 124,20 kr) verða eignir samtals 62,2 milljarðar króna, skuldir 31,2 milljarðar og eigið fé 31,0 milljarðar.
Skipastóll og afli
Í skipastól félagsins voru í septemberlok níu skip. Félagið hefur selt frystitogarann Þerney RE-1 og verður skipið afhent 30. nóvember. Verið er að koma fyrir vinnslubúnaði í ísfiskstogarann Akurey AK-10 og gert er ráð fyrir að Viðey RE-50 komi til landsins fyrir jól.
Á fyrstu níu mánuðum ársins 2017 var afli skipa félagsins 34 þúsund tonn af botnfiski og 88 þúsund tonn af uppsjávarfiski.
Kynningarfundur þann 30. nóvember 2017
Opinn kynningarfundur um afkomu félagsins á þriðja ársfjórðungi verður haldinn fimmtudaginn 30. nóvember klukkan 8:30 í höfuðstöðvum félagsins að Norðurgarði 1. Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri mun kynna uppgjörið og svara spurningum.