Icelandic
Birt: 2021-12-07 20:39:40 CET
Alma íbúðafélag hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Alma íbúðafélag hf.: Útgáfa á nýjum skuldabréfaflokki AL261022

Alma íbúðafélag hf. hefur lokið sölu á skuldabréfum í nýjum skuldabréfaflokki AL261022 sem gefinn er út undir útgáfuramma félagsins.

Skuldabréfaflokkurinn AL261022 er óverðtryggður með 3,45% nafnvöxtum og lokagjalddaga 26. október 2022. Vextir og höfuðstóll greiðast á lokagjalddaga. Flokkurinn er veðtryggður samkvæmt almennu tryggingarfyrirkomulagi.

Seld voru skuldabréf að nafnverði 2.200 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,45%.

Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl sem tengjast skuldabréfunum og útgáfu á þeim verða aðgengileg á vefsíðu félagsins, www.al.is/company/investors/bond-issuance. Tilkynningar sem Alma íbúðafélagið hf. hefur birt í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er föstudaginn 17. desember 2021 og í kjölfarið verður sótt um að skuldabréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf.

ACRO verðbréf hf. hafa umsjón með sölu skuldabréfanna og töku þeirra til viðskipta.

Nánari upplýsingar veitir:

Sigurður Rúnar Pálsson, fjármálastjóri, í síma 848 5290 eða sigurdur@al.is