Síminn hf. - Niðurstaða víxlaútboðs 16. apríl 2024Síminn hf. lauk í dag útboði á nýjum 6 mánaða víxlaflokki SIMINN241023. Heildartilboð í flokkinn námu samtals 1.560 m.kr. að nafnvirði á flötu vöxtunum 9,90,-10,30%. Tilboðum að fjárhæð 1.340 m.kr. að nafnvirði var tekið á 10,10% flötum vöxtum. Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 23. apríl 2024. Stefnt er að töku til viðskipta á Nasdaq Iceland í kjölfarið. Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu víxlanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.
Nánari upplýsingar veita: Ásgrímur Gunnarsson, markaðsviðskipti, Fossar fjárfestingarbanki, sími: 522 4000, netfang: asgrimur.gunnarsson@fossar.is. Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans, oskarh@siminn.is.
|