Landsbankinn hf. lauk í dag lokuðu útboði á þremur víxlaflokkum; LBANK 190311, LBANK 190410 og LBANK 191010.
Heildartilboð í útboðinu voru 11 talsins og námu samtals 1.120 m. kr.
Fjögur tilboð að fjárhæð 340 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 190311 og voru vextir tilboða á bilinu 4,45%-4,50%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.
Sex tilboð að fjárhæð 680 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 190410 og voru vextir tilboða á bilinu 4,45%-4,50%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 420 m. kr. á 4,50% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,7756.
Eitt tilboð að fjárhæð 100 m. kr. barst í flokkinn LBANK 191010 og voru vextir þess tilboðs 4,60%. Því tilboði var ekki tekið.
Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 10. október 2018.
Nánari upplýsingar um víxlana má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/vixlar.