Icelandic
Birt: 2023-11-07 12:39:00 CET
Reykjavíkurborg
Reikningsskil

FJÁRHAGSÁÆTLUN REYKJAVÍKURBORGAR 2024 OG FIMM ÁRA ÁÆTLUN 2024 - 2028

Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2024 og fimm ára tímabilið til 2028 er lögð fram í borgarstjórn til fyrri umræðu í dag.

Fjárhagsáætlun ársins 2024 gerir ráð fyrir að rekstrarniðurstaða A- og B- hluta verði jákvæð um 7,6 ma.kr. og EBITDA verði 56,1 ma.kr. Á árunum 2025-2028 er gert ráð fyrir batnandi afkomu A- og B- hluta og vaxandi EBITDA. Gert er ráð fyrir að í lok árs 2024 nemi eignir samtals 969 ma.kr. og aukist um 58,4 ma.kr. á árinu. Þá er gert ráð fyrir að eiginfjárhlutfall nemi 46,8% og hækki um 0,7%. Útkomuspá fyrir árið 2023 gerir ráð fyrir að afkoma ársins verði neikvæð um 4,4 ma.kr. Fjárhags- og fimm ára áætlun gerir ráð fyrir að þriggja ára jafnvægisviðmið sveitarstjórnarlaga verði jákvætt allt áætlunartímabilið. Þá gerir áætlunin ráð fyrir að skuldaviðmið verði yfir viðmiði árin 2024 til 2026, en haldi frá og með árinu 2027.

Fjárhagsáætlun A-hluta fyrir árið 2024 gerir ráð fyrir að rekstrarniðurstaða verði jákvæð um 591 m.kr. Gert er ráð fyrir að eignir A-hluta nemi 290 ma.kr. í lok árs 2024 og aukist um 9,4 ma.kr. milli ára. Gert er ráð fyrir að eiginfjárhlutfall nemi 28,4% í lok árs 2024. Útkomuspá gerir ráð fyrir að niðurstaðan verði neikvæð um 4,8 ma.kr. sem er um 10,8 ma.kr. jákvæður viðsnúningur frá fyrra ári. Halla ársins má rekja einkum til verðbólgu og vanfjármögnun á rekstri málaflokks fatlaðs fólks. Fjárhagsáætlun A-hluta einkennist af aðhaldi í rekstri og aðgerðum sem taka mið af markmiðum og megináherslum fjármálastefnu Reykjavíkurborgar.

Hjálagt er að finna frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2024 til 2028 ásamt ítarlegum greinargerðum um efni þess, fjármálastefnu og fjárhagslega sýn borgarinnar. Í meðfylgjandi fréttatilkynningu er að finna samandregnar upplýsingar um frumvarpið og efni þess.

Upplýsingar veitir Halldóra Káradóttir, sviðsstjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs
netfang: halldora.karadottir@reykjavik.is
Sími: 411-1111

Viðhengi



FRETTATILKYNNING til Kauphallar vegna fjarhagsatlunar 2024-2028.pdf
Frumvarp a fjarhagsatlun og fimm ara atlun 2024-2028.pdf
Greinarger fagsvia og B-hluta 2024-2028.pdf
Greinarger FAS me fjarhagsatlun 2024-2028.pdf