Bogi Nils Bogason, forstjóri:
„Árið 2018 var erfitt rekstrarár. Rekstarniðurstaðan var mun lakari en lagt var upp með í byrjun árs og endurspeglar harða samkeppni í millilandaflugi, lág og oft ósjálfbær fargjöld og mikla hækkun eldsneytisverðs. Jafnframt höfðu breytingar á sölu- og markaðsstarfsemi félagsins, sem og ójafnvægi í leiðarkerfi neikvæð áhrif á afkomuna, eins og áður hefur verið kynnt.
Markmið okkar er skýrt; að bæta arðsemi og rekstur félagsins til framtíðar. Nú þegar hafa verið gerðar breytingar á skipulagi félagsins sem endurspegla áherslur á kjarnastarfsemina, flugrekstur. Unnið er að fjölmörgum aðgerðum bæði á tekju- og kostnaðarhlið sem eiga að skila sér í bættum rekstri strax á árinu 2019. Þar má meðal annars nefna breytingu á framboði sem stuðlar að betra jafnvægi milli Evrópu og N-Ameríku í leiðarkerfi félagsins sem auðveldar stýringu þess og hámörkun tekna. Þá höfum við lagt aukna áherslu á hliðartekjur sem þegar hefur skilað árangri, sölu- og markaðsstarf félagsins verið eflt, auk þess sem innleiðing á nýju tekjustýringakerfi er á lokametrunum. Í vor, til viðbótar við núverandi tengibanka, hefst flug í nýjum tengibanka sem mun bæta nýtingu flota og flugáhafna, auka framboð og tekjur félagsins. Þar að auki er unnið að endurskoðun innanlandsflugs félagsins.
Ljóst er að áfram ríkir óvissa í rekstrarumhverfi félagsins auk þess sem breytingar eru að eiga sér stað í samkeppnisumhverfinu. Það býr hins vegar mikill kraftur og þekking í félaginu og starfsfólki okkar. Fjárhagstaðan er sterk og ég er sannfærður um að við séum vel í stakk búin til að takast á við þær áskoranir og grípa þau tækifæri sem framundan eru.“
Frekari upplýsingar veitir:
Bogi Nils Bogason, forstjóri, sími: 5050-100
Viðhengi