Stjórn Kaldalóns hf. hefur ákveðið að veita tilteknum starfsmönnum félagsins kauprétti að allt að 4.000.000 hlutum í félaginu.
Skilmálar kaupréttarsamninganna eru í samræmi við starfskjarastefnu sem samþykkt var á aðalfundi Kaldalóns þann 26. mars 2026. Kaupréttunum er ætlað að tvinna saman hagsmuni félagsins og starfsmanna til lengri tíma.
Meginefni kaupréttarsamninganna er sem hér segir:
- Nýtingarverð kaupréttanna er 25,7 kr. fyrir hvern hlut, þ.e. meðalgengi hlutabréfa í félaginu síðustu 10 viðskiptadaga eins og það er skráð á Nasdaq Iceland fyrir úthlutunardag. Nýtingarverð skal leiðrétt (til lækkunar) fyrir framtíðar arðgreiðslum og samsvarandi úthlutun til hluthafa af eignum félagsins, krónu fyrir krónu. Nýtingarverð skal einnig leiðrétt með 3% ársvöxtum ofan á áhættulausa vexti frá úthlutunardegi og fram að fyrsta mögulega nýtingardegi fyrir hvert nýtingartímabil.
- Ávinnsludagur er þremur (3) árum frá úthlutun.
- Nýtingartímabil hefst þegar í stað eftir lágmarks ávinnslutíma (3 ár frá úthlutun) og þá er unnt að nýta 1/3 af kaupréttum (tímabil 1), ári eftir það er unnt að nýta 1/3 (tímabil 2) og ári eftir það 1/3 (tímabil 3).
- Almennt séð falla kaupréttir niður fyrir ávinnslutíma ef ráðningarsambandi kaupréttarhafa við félagið er slitið.
- Komi til þess að breyting verður á yfirráðum í félaginu, sbr. 100. gr. laga nr. 108/2007 um yfirtökur, ávinnast allir útistandandi kaupréttir þegar í stað (flýting ávinnslutíma).
- Félaginu er óheimilt að veita lán eða ábyrgðir af nokkru tagi í tengslum við kaupréttarkerfið.
Í kjölfar úthlutunar kaupréttanna nemur heildarfjöldi útistandandandi kauprétta sem Kaldalón hefur veitt starfsmönnum sínum 22.750.000 hlutum eða um 1,77% hlutafjár í félaginu.
Nánari upplýsingar veitir;
Jón Þór Gunnarsson, forstjóri
jon.gunnarsson@kaldalon.is