English Icelandic
Birt: 2017-03-07 15:44:12 CET
Orkuveita Reykjavíkur
Reikningsskil

Planið gekk upp - Ársreikningur OR 2016

Reykjavík, 2017-03-07 15:44 CET -- Aðgerðaáætlunin sem Orkuveita Reykjavíkur hefur fylgt frá því snemma árs 2011 og nefnd er Planið gekk upp og vel það. Hún átti að skila liðlega 50 milljörðum króna í betri sjóðstöðu en niðurstaðan varð um 60 milljarðar. Þetta kemur fram í lokaskýrslu fyrirtækisins um Planið sem  lauk um áramót.

Ársreikningur OR fyrir árið 2016 var samþykktur af stjórn í dag. Rekstrarafkoma er svipuð og síðustu ár en hátt gengi  íslensku krónunnar skilar fyrirtækinu verulegum reiknuðum hagnaði. Hagnaðurinn nam 13,4 milljörðum króna á árinu. Arðsemi eigin fjár var 12,0%.

Lokaskýrsla Plansins

Frá því eigendur OR, þar sem Reykjavíkurborg er langstærst, og stjórn fyrirtækisins samþykktu Planið, í mars 2011, hefur fyrirtækið gefið opinbera skýrslu ársfjórðungslega um árangur þess. Samkvæmt lokaskýrslunni batnaði sjóðstaða OR um 60,2 milljarða króna vegna aðgerðanna sem gripið var til. Upphaflegt markmið var 51,3 milljarðar króna. Mest munar um að innri aðgerðir fyrirtækisins skiluðu 20% meiru en lagt var upp með. Ytri þættir Plansins skiluðu 13% umfram markmið. Í heildina fengust tæp 18% af árangri Plansins með gjaldskrárbreytingum.

Sparnaður í rekstri OR á tímabili Plansins nam 8,0 milljörðum króna og var 60% umfram upphafleg markmið.

Lægri rekstrarkostnaður en 2010

Í ársreikningnum sem samþykktur var í dag kemur fram að rekstrarafkoma fyrirtækjanna í samstæðu OR er stöðug og góð. Rekstrarhagnaður EBIT nam 15 milljörðum króna, sem er 3,7% betri afkoma af rekstri en 2015. Rekstrartekjur uxu um 1,1 milljarð króna milli áranna 2015 og 2016 og gjöldin um 880 milljónir. Kjarasamningsbundnar launahækkanir eiga talsverðan þátt í vaxandi kostnaði en einnig hefur verkefnum fjölgað með auknum umsvifum í samfélaginu og rekstur notkunarmæla er aftur kominn í hús eftir útvistun.

Ef litið er til áranna 2010-2016 og miðað er við fast verðlag sést meðal annars að rekstrargjöld ársins 2016 voru lægri að raunviði en ársins 2010. Þetta má rekja til þess niðurskurðar á rekstrarkostnaði sem ráðist var í við upphaf Plansins og aðhalds í rekstri síðan. OR og dótturfyrirtækin munu búa að þeirri sparnaðarmenningu sem byggð hefur upp til framtíðar. Um síðustu áramót skilaði sparnaður í rekstri sér beint til viðskiptavina þegar ýmis veitugjöld voru lækkuð.

Gengisáhrif á heildarniðurstöðu ársins

Samanlagðir fjármagnsliðir ársreiknings OR voru jákvæðir í fyrsta skipti um árabil. Mest munar um að hækkað gengi krónunnar hefur þau áhrif að erlend lán eru metin á færri krónur en áður og mismunurinn er færður fyrirtækinu til tekna í ársreikningnum. Gengismunur nam 8,5 milljörðum króna samkvæmt ársreikningnum .

OR hefur greitt niður skuldir jafnt og þétt síðustu ár. Lækkun nettóskulda frá árinu 2009 nemur tæpum 100  milljörðum króna. Samhliða hefur eiginfjárhlutfall nærri þrefaldast.

Bjarni Bjarnason, forstjóri

Það er mikilvægt að Planið gekk upp og að okkur tókst að nýta það til umbóta á miklu fleiri sviðum í rekstrinum en fjármálunum einum. Samstaða meðal eigenda fyrirtækisins, stjórnar og starfsfólks öll þau ár sem við höfum unnið eftir því hefur verið ánægjuleg.

Gildi Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfélaganna eru framsýni, hagsýni og heiðarleiki. Ég tel að lokaskýrsla Plansins sem nú birtist almenningi beri með sér að við höfum sýnt hagsýni í rekstrinum. Það munum við gera áfram. Nú blasa við okkur margháttaðar breytingar og það reynir á framsýni okkar svo við grípum tækifærin sem í breytingunum felast. Þar má sem dæmi nefna umhverfisvænni samgöngur og snjallvæðingu innviðanna sem okkur er trúað fyrir. Það er mikilvægt að taka réttar ákvarðanir í þeim efnum til lengri tíma litið og að undirbúa þær vel. Hér eftir sem hingað til munum við kappkosta að gera almenningi heiðarlega grein fyrir því hvernig reksturinn stendur á hverjum tíma og hvaða áskoranir blasa við okkur.

Rekstraryfirlit stjórnenda

Fjárhæðir eru í milljónum króna á verðlagi hvers árs 2012 2013 2014 2015 2016
           
           
Rekstrartekjur 37.905  39.209  38.526  40.357  41.423 
Rekstrarkostnaður (12.861) (13.126) (13.681) (15.183) (16.062)
Þar af orkukaup og –flutningur (4.866) (5.402) (5.335) (6.400) (6.205)
EBITDA 25.044  26.084  24.845  25.174  25.361 
Afskriftir (10.371) (8.927) (9.152) (10.747) (10.392)
Rekstrarhagnaður EBIT 14.673  17.157  15.693  14.428  14.968 
           
Afkoma tímabilsins (2.295) 3.350  8.871  4.176  13.352 
           
Sjóðstreymi:          
Innleystar vaxtatekjur 138  210  742  677  461 
Greidd vaxtagjöld (5.411) (4.967) (4.293) (3.948) (4.146)
Handbært fé frá rekstri 18.935 20.033 22.084 21.815 21.324
Veltufé frá rekstri 19.880 19.675 18.881 22.563 20.240

 

Athygli er vakin á því að í tilkynningum vegna síðustu árshlutareikninga OR hafa tölur í samsvarandi töflum yfir innleystar vaxtatekjur og greidd vaxtagjöld áranna 2012 og 2013 verið rangar og sýnt vaxtatekjur og vaxtagjöld úr rekstrarreikningi í stað sjóðsteymisyfirlits.

         Nánari upplýsingar:
         Bjarni Bjarnason
         forstjóri OR
         516 7707


Arsreikningur OR 2016.pdf
Lykiltolur Fjarmala OR 2016.pdf
Stouskyrsla ageraratlunar 2016.pdf