Landsbankinn hf. lauk í dag lokuðu útboði á þremur víxlaflokkum; LBANK 190410, LBANK 190510 og LBANK 191111.
Heildartilboð í útboðinu voru 14 talsins og námu samtals 2.340 m. kr.
Fimm tilboð að fjárhæð 380 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 190410 og voru vextir tilboða á bilinu 4,45%-4,80%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.
Níu tilboð að fjárhæð 1.960 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 190510 og voru vextir tilboða á bilinu 4,50%-4,80%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 1.760 m. kr. á 4,70% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,7164.
Ekkert tilboð barst í flokkinn LBANK 191111.
Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 12. nóvember 2018.
Nánari upplýsingar um víxlana má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/vixlar.