Icelandic
Birt: 2024-10-11 19:05:23 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

REITIR: Stækkun á skuldabréfaflokknum REITIR150534

Reitir fasteignafélag hf. hefur lokið sölu á skuldabréfum í skuldabréfaflokknum REITIR150534. Tilgangur útgáfunnar er að fjármagna fjárfestingaverkefni félagsins.

REITIR150534 er verðtryggður skuldabréfaflokkur sem er veðtryggður með almenna tryggingafyrirkomulagi félagsins. Flokkurinn er með lokagjalddaga 15. maí 2034 en endurgreiðsluferli höfuðstóls fylgir 30 ára greiðsluferli með jöfnum afborgunum fram til lokagjalddaga, þegar allar eftirstöðvar greiðast í einni greiðslu. Greiðslur vaxta og afborgana höfuðstóls fara fram á tveggja mánaða fresti.

Seld voru skuldabréf að nafnverði 2.000 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,04%. Áður hafa verið gefin út skuldabréf í flokknum að nafnvirði 6.582.024.217 kr. og verður því flokkurinn eftir stækkunina samtals 8.582.024.217 kr. að nafnvirði.

Stefnt er að uppgjöri viðskiptanna miðvikudaginn 23. október næstkomandi og verður óskað eftir því að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í kjölfarið.

Grunnlýsing félagsins, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu skuldabréfaflokksins verða birt á vefsíðu félagsins, reitir.is/fjarfestar. Tilkynningar sem Reitir fasteignafélag hf. birtir í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins.

ACRO verðbréf hf. hafði umsjón með viðskiptunum sem og töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, netfang: einar@reitir.is, sími: 669 4416.