English Icelandic
Birt: 2023-09-20 17:52:37 CEST
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem tveir flokkar voru boðnir til sölu.

Fjögur tilboð að fjárhæð 1.080 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 27 á ávöxtunarkröfu á bilinu 8,90%-9,14%. Tilboðum að fjárhæð 580 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 8,95%. Heildarstærð flokksins verður 32.020 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Tíu tilboð að fjárhæð 3.080 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 29 á ávöxtunarkröfu á bilinu 8,23%-8,40%. Tilboðum að fjárhæð 3.080 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 8,40%. Til viðbótar verður flokkurinn stækkaður um 960 m.kr. vegna verðbréfalána í tengslum við viðskiptavakt. Heildarstærð flokksins við útgáfu verður 4.040 m. kr.

Uppgjörsdagur er 27. september 2023.

Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A með jákvæðum horfum samkvæmt mati S&P.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 190/2023. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, Fjármögnun Landsbankans - Landsbankinn.