Icelandic
Birt: 2023-05-11 11:49:52 CEST
Reykjavíkurborg
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Niðurstaða úr skuldabréfaútboði Reykjavíkurborgar

Reykjavíkurborg hefur lokið útboði í skuldabréfaflokkunum RVK 32 1 og RVKG 48 1.

Í heildina bárust tilboð að nafnvirði 4.560 m.kr. í flokkana.

Heildartilboð í RVK 32 1 voru samtals 1.880 m.kr. að nafnvirði á bilinu 3,49%-3,68%. Ákveðið var að taka tilboðum, samtals að nafnvirði 1.280 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,61%. Útistandandi fyrir útboð voru 26.903 m.kr. að nafnvirði að meðtöldum eigin bréfum Reykjavíkurborgar vegna viðskiptavaktar 960 m.kr. Heildarstærð flokksins er nú 28.183 m.kr. að nafnverði.

Heildartilboð í RVKG 48 1 voru samtals 2.680 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 3,44%-3,53%. Ákveðið var að taka tilboðum, samtals að nafnvirði 1.880 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,50%. Útistandandi fyrir útboð voru 10.360 m.kr. að nafnvirði að meðtöldum eigin bréfum Reykjavíkurborgar vegna viðskiptavaktar 800 m.kr. Heildarstærð flokksins er nú 12.240 m.kr. að nafnverði.

Uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 16. maí 2023.

Viðskiptavakar Reykjavíkurborgar, Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, höfðu umsjón með útboðinu.

Nánari upplýsingar veitir:

Helga Benediktsdóttir
Skrifstofustjóri fjárstýringar- og innheimtuskrifstofu
Netfang: helga.benediktsdottir@reykjavik.is        
Sími: 898-8272