English Icelandic
Birt: 2022-04-08 18:39:15 CEST
Eimskipafélag Íslands hf.
Innherjaupplýsingar

Eimskip: Upplýsingar varðandi afkomu fyrsta ársfjórðungs

Samkvæmt stjórnendauppgjöri fyrir janúar og febrúar 2022 og áætlun fyrir mars sem nú liggur fyrir  lítur út fyrir að EBITDA á fyrsta ársfjórðungi 2022 verði umtalsvert hærri en EBITDA á sama ársfjórðungi í fyrra. Fyrsti ársfjórðungur byrjaði vel, bæði í gámaflutningum og alþjóðlegri flutningsmiðlun, samanborið við síðastliðið ár.

Áætlað er að EBITDA á fyrsta ársfjórðungi 2022 verði á bilinu 27-30 milljónir evra samanborið við 16,3 milljónir evra á sama ársfjórðungi 2021. Áætlað er að EBIT fjórðungsins verði á bilinu 11,7-14,7 milljónir evra samanborið við 4,5 milljónir evra á fyrsta ársfjórðungi 2021.

Eimskip vinnur enn að uppgjöri fyrir marsmánuð og fyrsta ársfjórðung 2022 og geta niðurstöður tekið breytingum í uppgjörsferlinu.

Eimskip birtir uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung eftir lokun markaða fimmtudaginn 12. maí 2022.

Nánari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs í síma 825-3399 eða á investors@eimskip.is.