English Icelandic
Birt: 2026-06-08 21:03:57 CEST
Festi hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Festi hf.: Útgáfa á nýjum víxlaflokki

Festi hf. hefur lokið sölu á nýjum sex mánaða víxli, FESTI261216 fyrir 1.300 m.kr. að nafnverði á kjörum sem samsvara 8,45% flötum vöxtum, en stefnt er að víxillinn verði tekinn til viðskipta og skráður í kauphöll Nasdaq Iceland.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður þriðjudaginn 16. júní 2026 og í kjölfarið verður sótt um að víxlaflokkurinn verði tekinn til viðskipta á Nasdaq Iceland.

Íslandsbanki hf. hafði umsjón með útgáfu og sölu víxlanna sem og töku víxlanna til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland.

Grunnlýsing og viðauki við grunnlýsinguna hafa verið birt í tengslum við útgáfuramma félagsins. Grunnlýsing útgáfuramma, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu víxlaflokksins og töku víxlanna til viðskipta í Kauphöll verða birt á vefsíðu félagsins: https://www.festi.is/skuldabrefogvixlar

Útboðið var undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði, sbr. lög nr. 14/2020 um sama efni.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi hf. (mki@festi.is).