English Icelandic
Birt: 2023-01-09 19:19:27 CET
Íslandsbanki hf.
Innherjaupplýsingar

Islandsbanki hf.: Athugun Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands á framkvæmd Íslandsbanka á útboði Bankasýslu ríkisins á 22,5% eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka

Íslandsbanki hefur fengið í hendur frummat fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (FME) vegna athugunar á framkvæmd Íslandsbanka hf. á útboði Bankasýslu ríkisins á 22,5% eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka sem fram fór hinn 22. mars 2022. Í matinu kemur m.a. fram að FME telji að bankinn kunni að hafa brotið gegn nánar tilgreindum ákvæðum laga og reglna sem um bankann og starfsemi hans gilda.

Í frummatinu er athygli vakin á heimildum FME til að leggja á stjórnvaldssektir og ljúka málinu með sátt. Sáttarferli er hafið og mun bankinn á næstu vikum setja fram skýringar sínar og sjónarmið við frummati FME. Stjórnendur bankans taka frummat FME alvarlega. Eins og áður hefur verið greint frá hefur bankinn þegar gert breytingar á innri reglum og ferlum og mun halda slíkri vinnu áfram í sáttarferlinu.

Þessi tilkynning er, hvað reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055, gerð af Jóni Guðna Ómarssyni, fjármálastjóra Íslandsbanka hf.

Nánari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl – Margrét Lilja Hrafnkelsdóttir, ir@islandsbanki.is

Samskiptastjóri – Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is

Póstlisti Íslandsbanka
Ef þú vilt gerast áskrifandi að kauphallarfréttum Íslandsbanka þá vinsamlegast skráðu þig hér: https://www.islandsbanki.is/is/grein/postlisti_ir

Um Íslandsbanka
Íslandsbanki er alhliða banki sem leggur áherslu á að koma til móts við þarfir viðskiptavina sinna og á sér langa sögu sem nær aftur til ársins 1875. Bankinn leggur áherslu á traustan rekstur og að hafa jákvæð áhrif í samfélaginu en hlutverk bankans er að vera hreyfiafl til góðra verka svo viðskiptavinir okkar nái árangri. Með framtíðarsýnina að vera #1 í þjónustu að leiðarljósi vinna þrjár viðskiptaeiningar þétt saman til þess að viðhalda góðum viðskiptasamböndum. Markaðshlutdeild bankans er sterk og rekur bankinn skilvirkasta útibúanetið á landinu og styður um leið við viðskiptavini sína á stafrænni vegferð þeirra. Umhverfið sem bankinn starfar í er eftirsóknarvert og er Íslandsbanki vel í stakk búinn að takast á við tækifærin framundan með öflugar tæknilegar stoðir og sterkan efnahagsreikning. Íslandsbanki er með lánshæfismatið BBB/A-2 frá S&P Global Ratings. Hlutabréf bankans eru skráð á Aðalmarkað Nasdaq Iceland.

Fyrirvari
Framangreind fréttatilkynning gæti vísað til spár um framtíðarhorfur sem er háð áhættu- og óvissuþáttum og getur þýtt að raunverulegur árangur verði umtalsvert frábrugðinn því sem spáð er í þessari fréttatilkynningu. Íslandsbanki hf. hefur ekki skyldu til að, og mun ekki, uppfæra þessar spár um framtíðarhorfur félagsins til að endurspegla atburði og aðstæður sem eiga sér stað eftir útgáfu þessarar fréttatilkynningar. Það er ábyrgð fjárfestis að reiða sig ekki seinna meir á spár um framtíðarhorfur sem eru settar fram í þessari fréttatilkynningu þar sem þær eiga eingöngu við á þeim tíma sem hún er gefin út. Spár um framtíðarhorfur gefa ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur og eru allar yfirlýsingar um framtíðarhorfur félagsins fullgildar í heild sinni með tilliti til þessa fyrirvara