Icelandic
Birt: 2026-07-02 10:43:27 CEST
Styrkás hf - Fyrirtækjafréttir

Styrkás hf.: Styrkás endurfjármagnar bankalán sín hjá Landsbankanum

Styrkás hefur undirritað samning við Landsbankann um endurfjármögnun á öllum bankalánum Styrkás samstæðunnar. 

Landsbankinn veitir Styrkás langtímalán að fjárhæð 6 milljarðar króna til fimm ára með einni höfuðstólsafborgun í lok lánstíma. Að auki veitir Landsbankinn lánalínur vegna fjárbindingar í birgðum og kröfum í daglegum rekstri.

Sömu fjárhagslegu skilyrði gilda um bankalánin og skráð skuldabréf Styrkás í Nasdaq OMX kauphöllinni á Íslandi. Kveðið er á um að eiginfjárhlutfall Styrkás samstæðunnar skuli ekki fara undir 25% og að hlutfall nettó vaxtaberandi skulda og EBITDA skuli vera undir 5 í lok júní og undir 4 um áramót. Eiginfjárhlutfall Styrkás um síðustu áramót var 47,9% og hlutfall nettó vaxtaberandi skulda og EBITDA var 1,6.

Ásmundur Tryggvason, forstjóri Styrkás:

„Með endurfjármögnun bankalána er tryggð hagkvæm langtímafjármögnun til næstu fimm ára. Fyrr á árinu gaf Styrkás út skuldabréf til fjögurra ára sem hafa verið tekin til viðskipta í Nasdaq OMX kauphöllinni. Fjölbreyttar tekjustoðir samstæðunnar og fjárhagslegur styrkleiki hafa skapað forsendur fyrir bættum lánskjörum og einföldun lánaskilmála. Þá mun skapast hagræði að færa dagleg bankaviðskipti samstæðunnar á einn stað.“

Um Styrkás hf.

Styrkás hf. er rekstrarfélag stofnað árið 2022. Dótturfélög Styrkás eru Skeljungur, Klettur, Stólpi og Hreinsitækni, sem saman mynda samstæðu félagsins.

Styrkás er leiðandi þjónustufyrirtæki á fyrirtækjamarkaði með styrk til að þjónusta innviða- og atvinnuvegafjárfestingu á Íslandi. Markmið félagsins er að byggja ofan á sterkar stoðir með innri og ytri vexti á fjórum kjarnasviðum: orku og efnavöru, tækjum og búnaði, eignaumsýslu og leigustarfsemi og umhverfis- og iðnaðarþjónustu. Styrkás Fasteignir heldur utan um fasteignir og lóðir samstæðunnar, samtals um 3 þúsund fermetra fasteignir og 68 þúsund fermetra lóðir.

Rekstrarhagnaður Styrkás samstæðunnar eftir afskriftir (EBIT) er áætlaður á bilinu 3.350–3.650 milljónir króna árið 2026. Stjórn Styrkás hefur ákveðið að hefja undirbúning að skráningu félagsins í Nasdaq OMX kauphöllina á Íslandi, með það að markmiði að félagið verði skráð á öðrum ársfjórðungi 2027.

Nánari upplýsingar veitir: Ásmundur Tryggvason, forstjóri Styrkás, asmundur@styrkas.is