Alma íbúðafélag hf. hefur lokið sölu á víxlum í tveimur flokkum til 3ja og 6 mánaða. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 1.180 m.kr.
Alma hefur ákveðið að taka tilboðum að fjárhæð 780 m.kr. í 3ja mánaða víxilinn á 9,00% vöxtum og 380 m.kr. í 6 mánaða víxilinn á 8,99% vöxtum eða samtals 1.160 m.kr. Áður hafði félagið selt 700 m.kr. í víxlinum AL 25 0615. Heildarstærð útgáfunnar nemur því 1.480 m.kr.
Arctica Finance hf. hafði umsjón með sölu víxlanna.
Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudagurinn 17. mars 2025.
Nánari upplýsingar veitir:
Ingólfur Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Ölmu íbúðafélags hf., í tölvupósti, ingolfur@al.is.