15. febrúar 2024
Á stjórnarfundi þann 15. febrúar 2024 samþykktu stjórn og forstjóri ársreikning samstæðu Kviku banka hf. („Kvika“) fyrir árið 2023.
Í samstæðureikningi Kviku fyrir árið 2023 er tryggingafélagið TM tryggingar hf. („TM“) flokkað sem eign haldið til sölu. Þar af leiðandi og í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla færir samstæðan tekjur af tryggingastarfsemi sinni í einni línu í rekstrarreikningi sem hagnað eftir skatta af aflagðri starfsemi. Samanburðartölur við rekstur ársins 2022 hafa verið uppfærðar til samræmis.
Helstu atriði ársreiknings og afkomu 2023:
Helstu tekjuliðir af banka- og eignastýringarstarfsemi:
Tekjur af tryggingastarfsemi:
Helstu atriði efnahags:
Helstu atriði í afkomu fjórða ársfjórðungs (4F 2023)
Helstu tekjuliðir af banka- og eignastýringarstarfsemi:
Tekjur af tryggingastarfsemi:
Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku:
„Rekstur Kviku á síðasta ári var traustur og afkoman viðunandi í ljósi krefjandi aðstæðna á fjármálamörkuðum. Hagnaður fyrir skatta, að tryggingafélaginu TM meðtöldu, nam 5,3 milljörðum króna á árinu 2023 og arðsemi efnislegs eigin fjár fyrir skatta var 12,1% á árinu.
Hreinar vaxtatekjur jukust um 13% á milli ára, en aðstæður framan af ári voru Kviku óhagstæðar vegna ört hækkandi vaxta þar sem vaxtakostnaður innlána hækkaði hraðar en vaxtatekjur vegna útlána. Á seinni hluta árs dró úr þessari þróun eftir að stýrivextir hættu að hækka og ber afkoma fjórða ársfjórðungs þess merki þar sem hreinar vaxtatekjur jukust um 39% á fjórðungnum samanborið við sama tímabil árið áður.
Markaðsaðstæður höfðu áhrif á hreinar þóknanatekjur sem drógust saman milli ára, sér í lagi vegna lægri þóknana í eignastýringu sem og hjá fyrirtækjum og mörkuðum. En jákvæður viðsnúningur varð á síðasta ársfjórðungi vegna hækkandi þóknanatekna í eignastýringu og á viðskiptabankasviði vegna aukinna umsvifa hjá Straumi.
Kvika er í dag með sterka eiginfjárstöðu, er vel fjármögnuð og með fjölbreytt og vel dreift lánasafn, sem er öfundsverð staða og gefur góð fyrirheit um rekstur ársins 2024.
Öll vörumerki okkar í einstaklingsþjónustu eru í öflugum vexti þar sem m.a. hefur verið lögð áhersla á að koma nýjum vörum og þjónustu á markað. Innlán hjá Auði jukust um nær 50%, metár var í útlánum hjá Lykli og Netgíró hélt áfram að vaxa. Aur, sem hefur verið í framsækinni þróun býður nú uppá fjölbreytta bankaþjónustu og hefur gefið út yfir 27.000 ný greiðslukort. Straumur, sem tók til starfa á síðasta ári, er í mikilli sókn með um 25% hlutdeild á innlendum greiðslumiðlunarmarkaði.
Hlutdeild í markaðsviðskiptum hefur farið vaxandi þar sem við erum með hæstu markaðshlutdeild í skuldabréfamiðlun á Nasdaq Iceland. Eignir í stýringu fara vaxandi og sjóðastýring Kviku eignastýringar hefur verið að skila hæstu ávöxtun á markaðnum. Þá er Kvika eini íslenski bankinn sem býður þjónustu með starfsemi í Bretlandi og hefur afkoman þar farið batnandi með auknum vaxtamun og vexti lánabókar.
Tryggingastarfsemin hjá TM skilaði framúrskarandi rekstri á síðasta ári og einnig á fjórða ársfjórðungi. Söluferlið á TM, sem er leitt af fyrirtækjaráðgjöf Kviku, gengur vel en um áramót var fjórum aðilum boðið að halda áfram í söluferlinu. Við gerum enn ráð fyrir að sölu eða skráningu TM verði lokið á öðrum eða þriðja ársfjórðungi ársins 2024.
Kvika hefur uppfært og birtir nú fjárhagsleg markmið bankans sem eru að arðsemi efnislegs eiginfjár fyrir skatta verði að jafnaði 20% eða hærri, að eiginfjárhlutfall bankans verði 2-4% yfir kröfum eftirlitsaðila og að samanlagðar arðgreiðslur og endurkaup verði að lágmarki 25% af hagnaði eftir skatta.
Við munum leggja okkur fram um að arðsemismarkmiði Kviku verði náð með áherslu á að efla starfsemi okkar á sviði viðskipta- og fjárfestingabankastarfsemi auk eignastýringar í kjölfar sölunnar á TM, einföldun starfseminnar og áframhaldandi áherslu á hagkvæmni í rekstri. Þá mun stöðugra vaxtaumhverfi og markaðsaðstæður einnig stuðla að bættri arðsemi bankans.“
Kynningarfundur og fjárfestakynning
Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn fimmtudaginn 15. febrúar kl. 16.15 í höfuðstöðvum bankans á 9. hæð í Katrínartúni 2, 105 Reykjavík. Fundinum verður jafnframt streymt á íslensku á eftirfarandi vefslóð:
https://kvika.is/kynning-a-uppgjori-2023/
Hægt er að senda tölvupóst með spurningum fyrir fund eða á meðan honum stendur á fjarfestatengsl@kvika.is
Meðfylgjandi er fjárfestakynning. Að auki mun upptaka með enskum texta vera gerð aðgengileg á vefsvæði Kviku.
Útgáfa sjálfbærniskýrslu 2023
Sjálfbærniskýrsla Kviku fyrir árið 2023 kemur út samhliða birtingu ársreiknings og er birt á vef Kviku.
Viðhengi