English Icelandic
Birt: 2026-05-05 15:23:00 CEST
Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Útgáfa grænna skuldabréfa fyrir 300 milljónir evra

Landsbankinn lauk í dag sölu á grænum skuldabréfum til fimm ára að fjárhæð 300 milljónir evra. Skuldabréfin bera 4,0% fasta vexti og voru seld á kjörum sem jafngilda 110 punkta álagi á miðgildi vaxtatilboða í vaxtaskiptasamningum á markaði.

Endanleg eftirspurn nam rúmlega 1.650 milljónum evra frá yfir 100 fjárfestum frá Bretlandi, Norðurlöndunum, meginlandi Evrópu og Asíu.

Skuldabréfin verða gefin út undir EMTN-útgáfuramma bankans með vísan í sjálfbæra fjármálaumgjörð bankans sem vottuð er af Sustainalytics. Skuldabréfin verða tekin til viðskipta í írsku kauphöllinni þann 12. maí 2026.

Umsjónaraðilar voru Barclays, BofA Securities, Citi og J.P. Morgan