Orkuveitan - Niðurstaða útboðs grænna skuldabréfaÚtboði á grænum skuldabréfum Orkuveitu Reykjavíkur (Orkuveitunnar) lauk í dag, 17. apríl 2024. Gefin voru út skuldabréf í skuldabréfaflokkunum OR020934 GB og OR180255 GB. OR020934 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 2. september 2034. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 22.482 m.kr. í flokknum. Heildartilboð í flokkinn voru samtals 1.980 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 3,95% - 4,08%. Tilboðum að fjárhæð 1.780 m.kr. að nafnvirði var tekið á ávöxtunarkröfunni 4,02%. OR0180255 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 30.521 m.kr. í flokknum. Heildartilboð í flokkinn voru samtals 1.315m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 3,40 - 3,52%. Tilboðum að fjárhæð 1.215 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,50%. Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf. Nánari upplýsingar: Brynja Kolbrún Pétursdóttir, framkvæmdastýra Fjármála Orkuveitunnar, sími: 516-6100, netfang: brynja.kolbrun.petursdottir@or.is Matei Manolescu, markaðsviðskiptum Fossa fjárfestingarbanka, sími: 522 4008, netfang: matei.manolescu@fossar.is
|