English Icelandic
Birt: 2024-12-12 17:44:48 CET
Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs víkjandi skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði víkjandi skuldabréfa sem telja til eiginfjárþáttar 2 (e. Tier 2).

Boðinn var til sölu nýr verðtryggður flokkur víkjandi skuldabréfa, LBANK T2I 36. Skuldabréfin bera fasta vexti sem greiðast einu sinni á ári, lokagjalddagi skuldabréfanna er í júní 2036 með innköllunarheimild í júní 2031 og á hverjum vaxtagjalddaga þar á eftir (11,5NC6,5).

Sjötíu tilboð að fjárhæð 21.580 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn á ávöxtunarkröfu á bilinu 4,64%-5,60%. Tilboðum að fjárhæð 7.640 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 5,06%.

Áætlaður uppgjörsdagur er 19. desember 2024.