English Icelandic
Birt: 2024-06-06 17:41:00 CEST
Icelandair Group hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

1,5 milljónir farþega á fyrstu fimm mánuðum ársins

Heildarfjöldi farþega Icelandair var 396 þúsund í maí, 8% fleiri en í maí 2023. Í mánuðinum voru 28% farþega á leið til Íslands, 16% frá landinu, 50% voru tengifarþegar og 6% ferðuðust innanlands. Sætanýting var 80% og stundvísi var 85,1%, 8,5 prósentustigum hærri en í maí 2023.

Það sem af er ári hefur Icelandair flutt um það bil 1,5 milljón farþega, 10% fleiri en í fyrra og jafnframt hefur orðið eftirtektarverð breyting í skiptingu á milli markaða. Eftirspurn eftir ferðum Íslendinga til útlanda heldur áfram að vera sterk en farþegum til Íslands hefur fækkað vegna mikillar samkeppni við aðra áfangastaði auk þess sem enn gætir neikvæðra áhrifa alþjóðlegrar fjölmiðlaumfjöllunar um eldgos á Reykjanesi.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair:

„Við höfum brugðist við þeirri breytingu sem orðið hefur á eftirspurn eftir ferðum til Íslands með því að nýta sveigjanleikann í leiðakerfinu okkar og auka áhersluna á tengimarkaðinn þar sem við bjóðum upp á 791 tengimöguleika yfir Atlantshafið. Ferðaþjónusta er ein mikilvægasta atvinnugreinin á Íslandi og til þess að örva áhuga á ferðum til Íslands viljum við hvetja íslensk stjórnvöld til þess að leggja aukna áherslu á markaðssetningu Íslands sem áfangastaðar, líkt og þekkist í þeim löndum sem við keppum við.

Nú er stærsta sumaráætlun okkar hingað til komin í fullan gang og við hófum flug til þriggja nýrra sumaráfangastaða í mánuðinum, Færeyja, Pittsburgh og Halifax auk þess sem við jukum tíðnina til fjölda vinsælla áfangastaða. Við erum til dæmis fyrsta alþjóðlega flugfélagið sem býður upp á þrjú alþjóðaflug á dag frá Seattle flugvelli.

Það er mjög ánægjulegt að sjá áframhaldandi góða stundvísi. Hún skýrist af skýrum áherslum félagsins og frábærri vinnu Icelandair teymisins. Þessi góða stundvísi hefur verið mikilvægur þáttur í aukinni ánægju viðskiptavina í öllum helstu ánægjumælingum.“


05 Traffic Data.pdf
15 milljonir farega a fyrstu fimm manuum arsins.pdf