Icelandic
Birt: 2022-11-29 19:55:20 CET
Síminn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Síminn hf. - Niðurstaða víxlaútboðs 29. nóvember 2022

Síminn hf. lauk í dag útboði á nýjum 6 mánaða víxlaflokki SIMINN230530.

Heildartilboð í flokkinn námu samtals 1.700 m.kr. að nafnvirði á flötu vöxtunum 7,09% - 7,45%. Tilboðum að fjárhæð 900 m.kr. var tekið á 7,20% flötum vöxtum.

Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 6. desember 2022. Stefnt er að töku til viðskipta á Nasdaq Iceland þann sama dag.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu víxlanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.

Nánari upplýsingar veita:

Matei Manolescu, markaðsviðskipti, Fossar fjárfestingarbanki, sími: 522 4008, netfang: matei.manolescu@fossarmarkets.com
Óskar Hauksson, fjármálastjóri, oskarh@siminn.is
Helgi Þorsteinsson, forstöðumaður fjárstýringar, helgith@siminn.is