Kaldalón hf.: Útgáfa skuldabréfa með stækkun á skuldabréfaflokki KALD 150234Kaldalón hf. hefur lokið við að stækka skuldabréfaflokkinn KALD 150234, sem gefinn er út undir 30.000 milljóna króna útgáfuramma félagsins. Kaldalón hf. seldi 1.860 milljónir króna, í skuldabréfaflokknum KALD 150234, á 4,10% ávöxtunarkröfu. Áður útgefið í skuldabréfaflokknum var 3.140 milljónir króna. Heildarstærð flokksins verður því 5.000 milljónir króna. Skuldabréfaflokkurinn KALD 150234 er verðtryggður á föstum 4% ársvöxtum, til 10 ára en endurgreiðsluferli afborgana og vaxta fylgir 30 ára jafngreiðsluferli. Skuldabréfaflokkurinn er veðtryggður samkvæmt almennu tryggingarfyrirkomulagi og er nú þegar skráður til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Áætlaður greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður föstudaginn 24. maí 2024. Afrakstri skuldabréfaútboðsins verður varið til endurfjármögnun skulda félagsins. Landsbankinn hf. hafði umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku stækkunarinnar til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Salan var framkvæmd í lokuðu útboði (e. private placement). Grunnlýsing og viðauki við grunnlýsinguna hafa verið birt í tengslum við útgáfuramma félagsins. Grunnlýsing útgáfuramma, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu skuldabréfaflokksins og töku skuldabréfanna til viðskipta í Kauphöll verða birt á vefsíðu félagsins; https://kaldalon.is/fjarfestar/. Nánari upplýsingar veita Sigurbjörg Ólafsdóttir, fjármálastjóri Kaldalóns hf., sigurbjorg.olafsdottir@kaldalon.is Gunnar S. Tryggvason, Verðbréfamiðlun Landsbankans hf., í síma 821 2090 eða gunnars@landsbankinn.is
|