Landsbankinn hf.: Leiðrétting: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfaLeiðrétting: Heildarstærð flokks eftir viðbótarútgáfu leiðrétt Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem einn flokkur var boðinn til sölu Fimmtán tilboð að fjárhæð 3.960 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 30 á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,56%-3,62%. Tilboðum að fjárhæð 3.580 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 3,59%. Heildarstærð flokksins eftir viðbótarútgáfuna verður 14.640 m. kr. Uppgjörsdagur er 24. apríl 2024. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A+ með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 190/2023. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, Fjármögnun Landsbankans - Landsbankinn.
|