Icelandic
Birt: 2022-11-25 09:58:12 CET
Útgerðarfélag Reykjavíkur hf
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Útgerðarfélag Reykjavíkur hf.: Útgáfa á víxlum

Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. (ÚR) hélt lokað útboð á víxlum í tveimur flokkum til 3 og 6 mánaða. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 4.920 milljónir króna. ÚR hefur ákveðið að taka tilboðum að fjárhæð 1.820 milljónum í þriggja mánaða víxilinn með 7,30% vöxtum, sem samsvarar 0,75% álagi á 3M Reibor. Nú eru liðin tvö ár frá fyrstu víxlaútgáfu ÚR, en þá bárust tilboð að fjárhæð 3.060 m.kr. á 2,21% álagi á 3M Reibor.
Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri ÚR: „Við hjá ÚR erum afar þakklát fyrir þann mikla áhuga og traust sem fjárfestar hafa sýnt félaginu, sem endurspeglast í hagkvæmara vaxtaálagi.“

Greiðslu- og uppgjörsdagur er á föstudaginn 2. desember 2022.
Arctica Finance hf. hafði umsjón með sölu víxlanna.
Nánari upplýsingar veitir:
Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri, í síma 580-4200 eða rvg@urseafood.is