Ölgerðin hefur undirritað samkomulag um helstu skilmála kaupa á 100% hlut í Kjarnavörum hf. („Kjarnavörur“ eða „fyrirtækið“). Fyrirtækið er í 32,4% eigu Guðjóns Rúnarssonar framkvæmdastjóra Kjarnavara og 67,6% í eigu Dragsbæk A/S í Danmörku. Kjarnavörur verður rekið sem sérstakt félag innan samstæðu Ölgerðarinnar og mun Guðjón áfram starfa sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins eftir kaupin. Hlutur Kjarnavara í dótturfélögum fylgir með í kaupunum, en það er 100% hlutur í Ísbúð Vesturbæjar ehf., 66,67% hlutur í Nonna litla ehf. og 59% hlutur í Innbaki hf. Heildarvirði Kjarnavara er 3.970 millj. kr. og verða kaupin fjármögnuð með lántöku. Kaupin eru gerð með fyrirvara um niðurstöðu áreiðanleikakönnunar, endanlega skjalagerð og samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Kjarnavörur er eitt stærsta framleiðslufyrirtæki landsins í sósum, sultum, grautum og smjörlíki. Framleiðslan er aðallega fyrir innanlandsmarkað en vörur eru jafnframt fluttar til Færeyja.
Stærstur hluti vara fyrirtækisins er seldur undir eigin vörumerkjum en um 40% veltu kemur fyrir framleiðslu undir vörumerkjum þriðja aðila. Hjá fyrirtækinu starfa 35 starfsmenn. Fjórar fasteignir (samtals um 3.000 m2) í Garðabæ og Hafnarfirði sem eru í eigu Kjarnavara fylgja með í kaupunum Samanlögð velta Kjarnavara og dótturfélaga á síðasta ári var um 4 ma. kr. og EBITDA var 574 mkr.
„Ölgerðin sér mikla möguleika í Kjarnavörum, sem hefur styrkt sig í sessi frá stofnun og er nú eitt öflugasta framleiðslufyrirtæki landsins á sínu sviði. Vörumerki þess eru sterk og framleiðsla fyrir þriðja aðila árangursrík. Kaupin eru í samræmi við stefnu okkar um kjarnastyrkleika í vörumerkjauppbyggingu og við hlökkum til framtíðar með Kjarnavörur í samstæðu Ölgerðarinnar,“ segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar.
„Kjarnavörur hafa náð að vaxa og stækka jafnt og þétt frá stofnun fyrirtækisins árið 1989. Einvala starfsfólk, skýr framtíðarsýn og öflugt gæðaeftirlit í framleiðslu hafa komið okkur á þann stað sem við erum í dag. Það er bjart framundan og það er ánægjuefni að ganga til liðs við Ölgerðina og halda uppbyggingunni áfram,“ segir Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Kjarnavara.
Ráðgjafar Ölgerðarinnar í viðskiptunum eru XAX Advisors og LOGOS.
Nánari upplýsingar veitir:
Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar andri.thor.gudmundsson@olgerdin.is / 412 8000