Styrkás hf. hefur undirritað verksamninga um ráðgjöf í tengslum við fyrirhugaða skráningu hlutabréfa félagsins á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Stefnt er að skráningu félagsins á öðrum ársfjórðungi 2027.
Landsbankinn hefur verið ráðinn umsjónaraðili með skráningunni og mun annast yfirumsjón með skráningu hlutabréfa Styrkás í kauphöllina og hlutafjárútboði í tengslum við skráninguna. Acro verðbréf, Fossar fjárfestingabanki og Kvika banki hafa verið ráðnir sem söluráðgjafar í fyrirhuguðu útboði í tengslum við skráninguna. Hlutverk söluráðgjafa er að veita ráðgjöf við kynningu og fyrirkomulag útboðs ásamt því að aðstoða við sölu hlutafjár í tengslum við skráningu félagsins í kauphöll í samvinnu við umsjónaraðila.
Ásmundur Tryggvason, forstjóri Styrkás:
„Góður undirbúningur er lykilþáttur að vel heppnaðri skráningu í kauphöll. Styrkás hefur undanfarin ár byggt upp innviði og stjórnarhætti með það að markmiði að vera vel í stakk búið að stíga skrefið inn í kauphöll. Við hlökkum til að vinna með umsjónaraðila og söluráðgjöfum að árangursríkri skráningu Styrkás.“
Nánari upplýsingar veitir Ásmundur Tryggvason, forstjóri Styrkás (asmundur@styrkas.is)
Um Styrkás
Styrkás hf. er rekstrarfélag stofnað árið 2022. Dótturfélög Styrkás eru Skeljungur, Klettur, Stólpi og Hreinsitækni, sem saman mynda samstæðu félagsins.
Styrkás er leiðandi þjónustufyrirtæki á fyrirtækjamarkaði með styrk til að þjónusta innviða- og atvinnuvegafjárfestingu á Íslandi. Félagið byggir á fjórum kjarnasviðum: orku og efnavöru, tækjum og búnaði, eignaumsýslu og leigustarfsemi og umhverfis- og iðnaðarþjónustu.
Stjórn Styrkás hefur ákveðið að hefja undirbúning að skráningu félagsins á Aðalmarkað Nasdaq Iceland, með það að markmiði að félagið verði skráð á öðrum ársfjórðungi 2027.