Helstu atriði í afkomu fjórða ársfjórðungs
Helstu atriði í afkomu ársins 2023
VILHELM MÁR ÞORSTEINSSON, FORSTJÓRI
"Við erum ánægð með afkomu ársins 2023 en aftur á móti voru niðurstöður fjórða ársfjórðungs undir okkar væntingum, sérstaklega ef litið er til áætlanasiglinga. Magn í áætlanasiglingum hélt ágætlega velli í fjórðungnum og lækkaði einungis um 2%, en helsta ástæða lægri afkomu var sú gjörbreyting í Trans-Atlantic flutningsverðum sem átti sér stað á árinu 2023. Það er mikilvægt að rifja upp að á árunum 2021 og 2022 hækkuðu alþjóðleg flutningsverð gríðarlega vegna þeirra truflana sem heimsfaraldurinn olli á aðfangakeðjum heimsins en verð á flestum leiðum hófu að lækka hratt um mitt ár 2022. Í tilfelli Trans-Atlantic byrjuðu verðin hins vegar ekki að lækka fyrr en í byrjun árs 2023 og í lok þriðja ársfjórðungs voru þau komin á svipaðan stað og fyrir heimsfaraldurinn. Óumflýjanlega hafði þetta mikil áhrif á afkomu áætlanasiglinga samanborið við metárið 2022, þar sem stór hluti af rekstrarkostnaði siglingakerfisins fylgir ekki tekjum heldur byggist á þeim eignum og innviðum sem standa undir siglingakerfinu.
Þegar við sáum fyrstu merki um lækkun flutningsverða í upphafi ársins 2023, hófumst við handa við að teikna upp breytingar á siglingakerfinu. Markmið breytinganna voru skýr frá byrjun: að lækka kostnað, minnka eldsneytisnotkun og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda ásamt því að tryggja áreiðanlega og góða þjónustu. Að breyta kerfi af þessari stærðargráðu og flækjustigi er ekki einfalt verk en við innleiddum fyrsta fasa breytinganna í maí 2023 og nutum ávinningsins hluta úr árinu. Seinni fasi breytinganna var kynntur í lok nóvember og verður innleiddur í lok febrúar á þessu ári. Það var ekki einungis tekjusamdráttur vegna breyttra markaðsaðstæðna sem hvatti okkur af stað í þetta verkefni, heldur erum við jafnframt að bregðast við nýjum umhverfisreglugerðum svo sem CII reglugerð Alþjóða Siglingamálastofnunarinnar og inngildingu skipaflutninga í ETS kerfi Evrópusambandsins. Við finnum jafnframt fyrir sívaxandi eftirspurn frá viðskiptavinum eftir umhverfisvænni flutningum en skipaflutningar eru nú þegar einn hagkvæmasti flutningsmáti sem völ er á þegar kemur að kolefnislosun. Þessar áherslur ríma vel við metnaðarfullt markmið okkar um að ná kolefnishlutleysi fyrir árið 2040.
Heilt yfir gekk vel í alþjóðlegri flutningsmiðlun félagsins á árinu, en við höfum verið á skýrt markaðri vegferð með þennan hluta rekstursins frá árinu 2019. Hún hefur meðal annars falið í sér hagræðingu og samþættingu ásamt því sem nútímalegar hugbúnaðarlausnir hafa verið innleiddar til þess að styðja við sölu og rekstur. Ávinningur þessara breytinga er að koma skýrar í ljós nú þegar við erum komin út úr þeim óvenjulegu aðstæðum sem einkenndu árin 2021 og 2022. Rekstrarniðurstaða ársins 2023 er sönnun þess að flutningsmiðlunin okkar getur skilað heilbrigðri afkomu í krefjandi markaðsaðstæðum, sem byggir ekki síst á sérstöðu okkar í sérhæfðri frystiflutningsmiðlun.
Litið fram á veginn erum við almennt bjartsýn fyrir komandi vikum og mánuðum. Þegar kemur að heimamarkaðnum okkar byrjaði árið 2024 í takt við væntingar með auknum útflutningi frá Íslandi og stöðugu innflutningsmagni. Í Færeyjum eru horfur nokkuð stöðugar þar sem útflutningsmagn hefur verið gott en það dró úr innflutningi um mitt síðasta ár og hefur magnið haldist á svipuðu róli síðan. Í Noregi undirbúum við okkur fyrir að ný vertíð nái hápunkti og þótt þorskkvóti sé töluvert undir síðasta ári mun vertíðin samt sem áður hafa góð áhrif í fyrsta ársfjórðungi.
Alþjóðlegi flutningageirinn er gríðarlega dýnamískur og um miðjan desember hófst enn og aftur tímabil mikilla verðsveiflna þegar Suez skurðurinn lokaðist nánast fyrir almennri umferð vegna árása herskárra hópa á flutningaskip. Þessi alvarlega staða hefur aukið hringferðartíma flutningaskipa og gáma milli Asíu og Evrópu sem hefur leitt til skarpra hækkana á flutningsleiðum tengdum Asíu. Nýlega hafa áhrif þessara atburða byrjað að koma fram í hækkunum á verðum á ótengdum flutningaleiðum, til dæmis Trans-Atlantic, enda hefur þessi staða raskað jafnvægi í flutningakeðjum og dregið umtalsvert úr afkastagetu í flutningskerfi heimsins. Hvernig þessir alvarlegu atburðir þróast getur haft áhrif á horfur fram undan fyrir alþjóðlega hluta starfsemi okkar en heilt yfir erum við nokkuð bjartsýn.
Að lokum vil ég þakka okkar metnaðarfulla starfsfólki um allan heim sem sýnir seiglu og útsjónarsemi alla daga með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu í síbreytilegu umhverfi."
KYNNINGARFUNDUR 14. FEBRÚAR 2024
Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. samþykkti ársreikning samstæðu Eimskips fyrir árið 2023 á stjórnarfundi þann 13. febrúar 2024. Kynningarfundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila verður haldinn miðvikudaginn 14. febrúar kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins Sundabakka 2, 2. hæð. Fundurinn verður einnig rafrænn og verður honum streymt beint á fjárfestasíðu Eimskips www.eimskip.com/investors.
Þar munu Vilhelm Már Þorsteinsson forstjóri og María Björk Einarsdóttir fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins fyrir fjórða ársfjórðung og fjárhagsárið 2023. Uppgjörsgögn og upptöku af fundinum verður einnig hægt að nálgast á fjárfestasíðunni.
FREKARI UPPLÝSINGAR
María Björk Einarsdóttir, fjármálastjóri , sími: 774 0604, netfang: investors@eimskip.com
Guðbjörg Birna Björnsdóttir, forstöðumaður fjárstýringar og fjárfestatengsla, sími 844 4752, netfang investors@eimskip.com
TIL ATHUGUNAR FYRIR FJÁRFESTA
Eimskip vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar tilkynningin er fyrst birt og takmarkast gildi þeirra við sem segir í fyrirvara þessum.
Viðhengi