English Icelandic
Birt: 2021-07-12 10:00:00 CEST
Nasdaq Nordic
Fjárfestatilkynningar

Nasdaq Iceland býður Solid Clouds velkomið á Nasdaq First North Growth Market

Reykjavík, 12. júlí, 2021 — Nasdaq (Nasdaq: NDAQ) tilkynnir að í dag hófust viðskipti með hlutabréf Solid Clouds hf. (auðkenni: SOLID) á Nasdaq First North Growth Market Iceland*. Félagið tilheyrir neysluvöru- og þjónustugeiranum (e. Consumer Products and Services) og er 124. félagið sem tekið er til viðskipta á mörkuðum Nasdaq Nordic** í ár.

Solid Clouds er tölvuleikjafyrirtæki með áherslu á þróun tæknigrunns sem hraðar framleiðslu á fjölspilunarleikjum (e. MMORTS-leikir: Massively Multiplayer Online Real Time Strategy), en stefnan er sett á framleiðslu nýs leiks á þriggja ára fresti. Viðskiptalíkan Solid Clouds miðar að því að geta aðlagast fljótt breyttri eftirspurn neytenda á markaði, en með sérhæfðri tækni er hægt að fínstilla tölvuleikina til að halda í spilara og hámarka tekjur. Solid Clouds hleypti fyrsta fjölspilunarleiknum sínum, Starborne: Sovereign Space, af stokkunum árið 2020. Solid Clouds stefnir á að verða leiðandi framleiðandi MMORTS leikja. Nánari upplýsingar á www.solidclouds.com

„Skráning Solid Clouds er rökrétt og mikilvægt skref fyrir félagið,“ segir Stefán Gunnarsson, forstjóri Solid Clouds. „Leikjaiðnaðurinn er sú grein sem er hvað mest vaxandi á heimsvísu á sviði tæknilegrar afþreyingar og við sjáum því gífurleg tækifæri fram undan á þessu sviði. Við byggjum á velgengni fyrsta leiksins okkar í Starborne seríunni og skráningin styður við metnaðarfull áform okkar um áframhaldandi vöxt og verðmætasköpun. Við bjóðum nýja hluthafa innilega velkomna og hlökkum til að taka þá með í vegferðina okkar.“

„Við erum mjög stolt af því að bjóða Solid Clouds  velkomið á Nasdaq First North vaxtarmarkaðinn, sagði Magnús Harðarson, forstjóri Nasdaq Iceland.  „Það er sérlega ánægjulegt að fá fyrsta tölvuleikjafyrirtækið á íslenska markaðinn og eins og sjá má af hlutafjárútboðinu hafa fjárfestar tekið fyrirtækinu opnum örmum. Við óskum öllum hjá Solid Clouds til hamingju með áfangann og hlökkum til að styðja við félagið á vaxtarbrautinni.“

*Þar sem MiFID II hefur ekki tekið gildi á Íslandi hefur Nasdaq First North Growth Market Iceland ekki verið skráður sem vaxtarmarkaður lítilla og meðalstórra fyrirtækja (e. SME Growth Market).

**Aðalmarkaðir og Nasdaq First North í Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm.

Um Nasdaq

Nasdaq (Nasdaq: NDAQ) er alþjóðlegt tæknifyrirtæki sem þjónar verðbréfamörkuðum og öðrum atvinnugeirum. Fjölbreytt framboð okkar af markaðsgögnum, greiningarvörum, hugbúnaði og þjónustu gerir viðskiptavinum okkar kleift að láta framtíðarsýn þeirra verða að veruleika. Til að fræðast meira um félagið, tæknilausnir og störf hjá okkur, smellið á LinkedIn, Twitter @Nasdaq eða www.nasdaq.com

Nasdaq tengiliður:

Baldur Thorlacius

baldur.thorlacius@nasdaq.com

696 3388