English Icelandic
Birt: 2022-09-13 18:24:23 CEST
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem tveir flokkar voru boðnir til sölu.

Fjórtán tilboð að fjárhæð 1.460 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 25 á ávöxtunarkröfunni 6,65%-6,77%. Tilboðum að fjárhæð 860 m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 6,73%. Heildarstærð flokksins verður 53.660 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Fjögur tilboð að fjárhæð 1.000 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 27 á ávöxtunarkröfu á bilinu 6,45%-6,51%. Tilboðum að fjárhæð 500m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 6,47%. Heildarstærð flokksins verður 10.940 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Uppgjörsdagur er 20. september 2022.

Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, Fjármögnun Landsbankans - Landsbankinn.