English Icelandic
Birt: 2024-02-15 16:47:37 CET
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem tveir flokkar voru boðnir til sölu.

Tólf tilboð að fjárhæð 2.760 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 29 á ávöxtunarkröfu á bilinu 7,50%-7,60%. Tilboðum að fjárhæð 1.980 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 7,54%. Heildarstærð flokksins verður 12.980 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Sextán tilboð að fjárhæð 4.220 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 30 á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,54%-3,63%. Tilboðum að fjárhæð 3.100 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 3,56%. Heildarstærð flokksins við útgáfu verður 8.840 m. kr.

Uppgjörsdagur er 22. febrúar 2024.

Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A+ með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 190/2023. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, Fjármögnun Landsbankans - Landsbankinn.