Arion banki lauk í dag útgáfu á skuldabréfum að fjárhæð 300 milljónir sænskra króna.
Skuldabréfin eru til þriggja ára, og bera breytilega vexti sem nema 300 punkta álagi á þriggja mánaða millibankavexti í sænskum krónum.
Skuldabréfin verða gefin út undir EMTN-útgáfuramma bankans og er stefnt að töku skuldabréfanna til viðskipta í kauphöllinni í Lúxemborg þann 13. mars 2023.
Umsjónaraðili var Nordea
Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til:
Theodórs Friðbertssonar, forstöðumanns fjárfestatengsla Arion banka, ir@arionbanki.is, s. 856 6760, eða Eiríks Dórs Jónssonar, forstöðumanns fjárstýringar, eirikur.jonsson@arionbanki.is, s. 856 7171