Í heild bárust 14 tilboð að fjárhæð 3.900 m.kr að nafnverði bárust í flokkinn ARION CB 27 á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,69-6,00%. Tilboð að nafnvirði 3.220 m.kr. á kröfunni 5,84% voru samþykkt.
Til viðbótar verður flokkurinn stækkaður um 960 milljónir vegna verðbréfalána til viðskiptavaka. Heildarstærð flokksins verður 4.180 m.kr eftir útgáfuna.
Í samræmi við útboðstilkynningu bauðst Arion banki til að kaupa til baka ARION CB 22 gegn sölu í útboðinu á fyrirframákveðna verðinu 100,756. Niðurstaða skiptiútboðs leiðir til þess að Arion banki kaupir 2.740 m.kr. að nafnverði í flokknum ARION CB 22.
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipti í Nasdaq Iceland þann 12. maí 2022.
Umsjónaraðili útboðsins var Markaðsviðskipti Arion banka.