Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem flokkurinn LBANK CB 27 var boðinn til sölu.
Þrjú tilboð að fjárhæð 1.500 m. kr. að nafnverði bárust á ávöxtunarkröfunni 8,05%-8,11%. Öllum tilboðum var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 8,11%. Heildarstærð flokksins verður 31.440 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.
Uppgjörsdagur er 28. ágúst 2023.
Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A með jákvæðum horfum samkvæmt mati S&P.
Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 190/2023. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, Fjármögnun Landsbankans - Landsbankinn.