English Icelandic
Birt: 2024-08-30 13:20:00 CEST
Arion banki hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

Arion banki: Endurkaupaáætlun stækkuð í 3,9 milljarða króna

Bankinn hefur nú ákveðið að nýta heimild Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands sem eftir stendur að loknum endurkaupum með útboðsfyrirkomulagi og hækkar því hámarksfjárhæð endurkaupa á grundvelli núverandi endurkaupaáætlunar úr 2,5 milljörðum í 3.9 milljarða króna.

Vísað er til fréttatilkynningar Arion banka hf. sem birt var 25. júlí 2024 um framkvæmd endurkaupaáætlunar á Íslandi og í Svíþjóð og fréttatilkynninga Arion banka hf. frá 21. og 29 ágúst 2024 um endurkaupum á eigin bréfum með öfugu tilboðsfyrirkomulagi.

Hámarksfjöldi hluta sem endurkaupaáætlunin kveður á um að verði keyptir eru að nafnverði kr. 31.321.362 hlutir. Fjárhæð endurkaupanna verður þó aldrei hærri en sem nemur 3.938.816.794 kr. en bankinn hefur nú þegar keypt 15.210.000 hluti á Íslandi og 10.278 heimildarskírteini í Svíþjóð að andvirði samtals 2.085.725.572 króna undir umsjón Íslandsbanka hf. Uppfærð skipting endurkaupa milli Íslands og Svíþjóðar er þannig að endurkaup verða að hámarki 3.888.816.794 kr. á Íslandi og 50.000.000 kr. í Svíþjóð eða allt að 31.321.362 hlutir og allt að 384.600 heimildarskírteini (samtals 2,09% af útgefnu hlutafé bankans).

Íslandsbanki hf. mun áfram hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar á Íslandi og í Svíþjóð. Mun Íslandsbanki hf. taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð og án áhrifa frá Arion banka hf. Áætlunin heldur því áfram á báðum mörkuðum og gildir til 12. mars 2025. Arion banki hf. hefur heimild til að stöðva framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar hvenær sem er á þessu tímabili.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður þannig háttað að kaup hvers dags í kauphöll Nasdaq Ísland og Nasdaq Stokkhólmi verða að hámarki 25% af meðaldagsveltu með hlutabréf eða heimildarskírteini bankans á undangengnum 20 viðskiptadögum áður en kaup gerast.

Í kauphöll Nasdaq Stokkhólmi mega kaup aðeins eiga sér stað innan þess verðbils sem gildir á Nasdaq Stokkhólmi, þar sem verðbilið nær frá hæsta kaupverði (e. best bid) til lægsta söluverðs (e. best offer) sem í gildi er og tekið saman hjá Nasdaq Stokkhólmi, í samræmi kafla H í viðbæti D við Reglubók fyrir útgefendur hlutafjár á aðalmörkuðum Nasdaq Nordic sem tók gildi þann 1. janúar 2024.

Í kauphöll Nasdaq á Íslandi skal verð fyrir hvern hlut að hámarki samsvara hæsta verði í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq Ísland, hvort sem hærra er, allt í samræmi við ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem lagagildi hefur á Íslandi.

Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, eins og við á, þar með talin Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik („MAR“) og ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem og íslensk lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum auk reglna nr. 320/2022 um sama efni. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða birt opinberlega í samræmi við gildandi lög og reglur í Svíþjóð og á Íslandi, eins og við á.


Arion banki Endurkaupaatlun stkku i 39 milljara krona.pdf