Icelandic
Birt: 2026-02-25 12:48:55 CET
SÍL hs. - Ársreikningur

Ársreikningur SÍL hs. 2025

Sérhæfði hlutdeildarsjóðurinn SÍL hs. sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf sem tekin voru til viðskipta á First North Iceland Fixed Income í apríl árið 2021.

  • Hagnaður varð af rekstri sjóðsins á árinu 2025 að fjárhæð 102 þús. kr. samkvæmt rekstrarreikningi og er hagnaðurinn færður til hækkunar á hlutdeildarskírteinum.
  • Eignir sjóðsins í árslok 2025 námu 3.771 millj. kr. og hrein eign sjóðsins nam 1 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
  • Ársreikningurinn var endurskoðaður af Deloitte ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2025, efnahag hans 31. desember 2025 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á árinu 2025, í samræmi við lög um ársreikninga og lög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.

Hægt verður að nálgast ársreikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. https://www.stefnir.is/sjodir/#skradir_fjarmalagerningar 

Nánari upplýsingar veitir Fríða Einarsdóttir í síma 660-0642, frida.einarsddottir@stefnir.is

Viðhengi


SIL hs. arsreikningur 31.12.2025.pdf