English Icelandic
Birt: 2024-03-05 17:45:00 CET
Íslandsbanki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Íslandsbanki hf.: Niðurstaða útboðs á almennum skuldabréfum í íslenskum krónum

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á ISB 28 1221 flokki almennra skuldabréfa (e. senior preferred). Heildareftirspurn í útboðinu var 5.640 m.kr á ávöxtunarkröfunni 4,00% - 4,20%.

Seld voru skuldabréf að fjárhæð 5.320 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,16%.

Áætlaður uppgjörsdagur er 14. mars 2024.

Umsjónaraðili útboðsins var Verðbréfamiðlun Íslandsbanka.


Islandsbanki hf. Niurstaa utbos a almennum skuldabrefum i islenskum kronum.pdf