Lánasjóður sveitarfélaga - Endurskoðuð útgáfuáætlunLánasjóður sveitarfélaga hefur frá áramótum gefið út skuldabréf að fjárhæð samtals 9,3 milljarða króna að markaðsvirði. Sjóðurinn áætlar að gefa út 4,7 til 9,7 milljarða króna til viðbótar á árinu. Áætluð heildarútgáfa fyrir árið 2024 er því á bilinu 14 til 19 milljarðar króna að markaðsvirði. Næsta útboð er fyrirhugað þann 11. september 2024.
Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, ottar@lanasjodur.is / s. 515 4949
|