Lánasjóður sveitarfélaga - útgáfuáætlun fyrir árið 2022Áætluð útgáfa skuldabréfa Lánasjóðs sveitarfélaga árið 2022 til fjármögnunar útlána er 22-28 milljarðar króna að markaðsvirði. Áætlun þessi miðast við núverandi aðstæður á markaði. Verði breytingar á markaðsaðstæðum má reikna með að ofangreind áætlun geti breyst. Lánasjóður sveitarfélaga endurskoðar áætlanir sínar hálfsárslega eða oftar ef þörf krefur. Nánari upplýsingar má finna í viðhengi.
Útgáfudagatal verður gefið út síðar. Frekari upplýsingar veitir Daníel Jakobsson s: 515-4950.
|