Afkoma litast af heimsfaraldrinum
Helstu atriði ársreiknings
Hörður Arnarson, forstjóri:
„Rekstur og afkoma Landsvirkjunar árið 2020 lituðust óhjákvæmilega af áhrifum heimsfaraldursins, sem hafði mikil áhrif á efnahagslífið á Íslandi og í heiminum öllum. Viðskiptavinir okkar drógu margir úr framleiðslu vegna minnkandi eftirspurnar og lækkandi afurðaverðs, auk þess sem orkuverð lækkaði mjög á mörkuðum, þótt sú þróun hafi að nokkru gengið til baka síðla árs. Hluti raforkusamninga Landsvirkjunar er tengdur álverði og verði á raforku á Nord Pool-markaði.
Árið 2021 byrjar ágætlega, en verð á ál- og Nord Pool mörkuðum hefur hækkað milli ára. Þá var ánægjulegt að fyrr í vikunni undirritaði Landsvirkjun viðauka við raforkusamning við sinn elsta viðskiptavin, Rio Tinto á Íslandi, sem styrkir rekstrargrundvöll álversins á næstu árum og tryggir fyrirsjáanlegt tekjustreymi Landsvirkjunar.
Landsvirkjun er burðarás í íslensku atvinnu- og efnahagslífi. Ábyrgð okkar er mikil og í því ljósi höfum við unnið af festu að því að bæta skuldastöðu fyrirtækisins síðasta áratuginn eða svo. Árangurinn af því starfi gerir okkur nú kleift að standa þétt við bakið á viðskiptavinum okkar með því til dæmis að veita þeim tímabundinn afslátt af rafmagnsverði á síðasta ári og taka þátt í öflugri viðspyrnu fyrir efnahagslífið með því að ráðast í ýmsar framkvæmdir, endurbætur, stafræna þróun og rannsókna- og þróunarverkefni víðs vegar um landið.
Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði, sem er sá mælikvarði sem gefur besta mynd af grunnrekstri fyrirtækisins, lækkaði um 21% milli ára. Þar höfðu mest áhrif minni raforkusala, sértækar aðgerðir fyrir viðskiptavini og tenging raforkuverðs við álverð og Nord Pool verð. Rekstrartekjur lækkuðu um 11% og handbært fé frá rekstri um 21%. Það er þó ánægjulegt að á sama tíma tókst okkur að halda áfram á þeirri braut að lækka nettó skuldir fyrirtækisins. Þrátt fyrir þennan óróleika í ytra umhverfi fyrirtækisins gekk starfsemin vel á árinu. Rekstur aflstöðva gekk vel. Þótt erfiðleikar steðji að efnahagslífinu nú um sinn eru viðskiptavinir okkar nú að auka framleiðslu sína og einnig blasa við ýmis tækifæri fyrir Landsvirkjun í framtíðinni, svo sem í grænni vetnisvinnslu, vistvænum iðngörðum og annarri grænni nýsköpun á borð við Orkídeuverkefnið á Suðurlandi, Bláma á Vestfjörðum og EIM á Norðurlandi. Framtíðin ætti því að vera björt, þótt gefið hafi á bátinn í bili.“
Viðhengi