Stjórn Íslandshótela hf. staðfesti á fundi sínum í dag, fimmtudaginn 26. mars 2026, ársreikning félagsins fyrir árið 2025. Ársreikningur félagsins hefur nú verið birtur.
Helstu lykiltölur ársins 2025 samanborið við 2024:
- Rekstrartekjur námu 16.637,8 m.kr. (2024: 16.669,3 m.kr.)
- EBITDA nam 4.154,2 m.kr. (2024: 4.415,8 m.kr.)
- Tap eftir skatta nam 282,8 m.kr. (2024: hagnaður 104,8 m.kr.)
- Heildareignir í árslok námu 65.223,6 m.kr. (2024: 65.430,3 m.kr.)
- Bókfært eigið fé í árslok nam 25.829,1 m.kr. (2024: 25.746,0 m.kr.)
- Eiginfjárhlutfall var 39,6% (2024: 39,3%)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) lækkaði um 6% milli ára. Fjöldi ferðamanna til landsins var um 2,3 milljónir og stóð í stað milli ára, en árstíðarsveiflur jukust á ný sem hafði áhrif á rekstur félagsins. Neikvæð gengisáhrif höfðu einnig áhrif á afkomuna og námu 148 milljónum króna á árinu 2025 samanborið við jákvæð gengisáhrif upp á 301 milljón króna árið áður.
Tekjuberandi fasteignir félagsins voru endurmetnar á árinu í samræmi við IAS 16 og hækkaði bókfært virði þeirra um 457,2 m.kr. samkvæmt mati óháðs sérfræðings. Á árinu störfuðu að jafnaði 636 starfsmenn hjá félaginu miðað við heilsársstörf.
Félagið hélt áfram fjárfestingum í rekstri og innviðum, þar á meðal stækkun Hótels Reykjavík Grand sem er stærsta framkvæmd í sögu félagsins. Með verkefninu er ráðist í fjölgun herbergja, stækkun ráðstefnu- og fundaraðstöðu ásamt endurbótum á þjónustuinnviðum. Að framkvæmdum loknum verður hótelið stærsta hótel landsins og styrkir samkeppnisstöðu félagsins á alþjóðlegum markaði. Á hótelinu verða alls 448 herbergi ásamt 12 nýjum funda- og ráðstefnusölum. Samhliða hefur félagið fjárfest í endurbótum á öðrum hótelum með það að markmiði að bæta gæði þjónustu og styðja við samkeppnishæfni til lengri tíma.
Rekstrarumhverfi ársins var krefjandi, meðal annars vegna hás vaxtastigs, verðbólgu og aukins kostnaðarþrýstings. Þá hafði óvissa í alþjóðlegu efnahagsumhverfi og breytingar í flugframboði áhrif á ferðaþjónustu. Þrátt fyrir það er mat stjórnar að eftirspurn eftir ferðum til Íslands verði áfram sterk til lengri tíma, enda nýtur landið sérstöðu á alþjóðlegum markaði.
Á árinu 2025 var ráðist í endurfjármögnun lána samstæðunnar með það að markmiði að bæta fjármögnunarkjör og samræma sjóðstreymi betur árstíðarsveiflum í rekstri. Aðgerðirnar styrkja fjárhagsstöðu félagsins og styðja við áframhaldandi uppbyggingu.
Félagið hélt áfram markvissri vinnu í sjálfbærnimálum og gefur út sína fyrstu sjálfbærniskýrslu í samræmi við VSME-staðalinn. Verður hún birt samhliða ársreikningi á heimasíðu Íslandshótela. Þar eru sett fram mælanleg markmið um samdrátt í losun, bætta auðlindanýtingu og aukna velferð starfsfólks. Öll hótel félagsins hafa hlotið Green Key vottun og félagið er aðili að Glasgow yfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna um loftslagsaðgerðir í ferðaþjónustu. Lögð er áhersla á jákvætt og inngildandi vinnuumhverfi og hlaut félagið Hinsegin vottun Samtakanna ’78 á árinu 2025.
Hlutafé félagsins nam 616,6 m.kr. í árslok, þar af voru 50,0 m.kr. í eigu félagsins. Stjórn leggur til að ekki verði greiddur arður vegna ársins 2025 og að afkoma ársins verði flutt til næsta árs.
„Rekstrarumhverfi ársins 2025 var krefjandi og einkenndist af auknum kostnaði ásamt breyttri dreifingu ferðamanna yfir árið. Þrátt fyrir það héldum við rekstrinum tiltölulega stöðugum og fjárhagsstaða félagsins er traust. Við höfum jafnframt haldið áfram að fjárfesta í innviðum, þar á meðal stækkun Hótels Reykjavík Grand. Þá var ráðist í endurfjármögnun sem styrkir reksturinn til framtíðar. Við sjáum áfram merki um mikla eftirspurn eftir ferðum til Íslands og teljum félagið vel í stakk búið til að nýta þau tækifæri sem fram undan eru. Við erum jafnframt stolt af útgáfu fyrstu sjálfbærniskýrslu félagsins sem veitir skýra yfirsýn yfir áhrif starfseminnar á umhverfi, samfélag og stjórnarhætti ásamt því hvernig sjálfbærni er samþætt daglegum rekstri félagsins,“ segir Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela.
Ársreikningur félagsins er meðfylgjandi og er hann einnig að finna á heimasíðu félagsins, www.islandshotel.is/fjarfestar.
Félagið er með skráð skuldabréf í Kauphöll Íslands og fylgir þeim reglum sem gilda um félög með skráða fjármálagerninga á skipulegum markaði. Meðfylgjandi er staðfestingarbréf frá Deloitte vegna skuldabréfaflokks IH140647.
Sjálfbærniskýrsla Íslandshótela hf.: https://www.islandshotel.is/is/um-okkur/sjalfbaerni/
Nánari upplýsingar veitir:
Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela hf.
david@islandshotel.is
sími: 862 8089