Icelandic
Birt: 2024-10-10 18:16:15 CEST
Lánasjóður sveitarfélaga ohf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða úr skuldabréfaútboði

Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokkunum LSS 39 0303 og LSS151155 þann 10. október 2024. Uppgjör viðskipta fer fram 15. október 2024.

Alls bárust tilboð í LSS 39 0303 að nafnvirði ISK 2.320.000.000 á bilinu 3,80% - 3,88%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 1.400.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,83%. Útistandandi fyrir voru ISK 30.502.600.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 500.000.000). Heildarstærð flokksins er nú ISK 31.902.600.000.

Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 1.650.000.000 á bilinu 3,39% - 3,45%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 900.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,41%. Útistandandi fyrir voru ISK 32.455.000.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 440.000.000). Heildarstærð flokksins er nú ISK 33.355.000.000.

 

Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, ottar@lanasjodur.is / s. 515 4949