Reykjastræti ehf. lauk á föstudaginn 23. janúar 2026, sölu á nýjum skuldabréfaflokki REYS 280133.
REYS 280133 er verðtryggður skuldabréfaflokkur sem er veðtryggður með almennu tryggingarfyrirkomulagi félagsins. Flokkurinn er með lokagjalddaga 28. janúar 2033 en endurgreiðsluferli höfuðstóls fylgir 30 ára greiðsluferli með jöfnum greiðslum fram til lokagjalddaga, þegar allar eftirstöðvar greiðast í einni greiðslu. Greiðslur vaxta og afborgana höfuðstóls fara fram á þriggja mánaða fresti.
Gefin voru út skuldabréf að nafnvirði 1.500 m.kr. og seld á ávöxtunarkröfunni 4,12%. Stefnt er að uppgjöri viðskiptanna fimmtudaginn 29. janúar nk. og verður óskað eftir því að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í kjölfarið. Skuldabréfin voru seld í lokuðu söluferli og útboðið var undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c- og d-liðar 4. mgr. 1. gr. lýsingarreglugerðar ESB nr. 2017/1129.
Fossar fjárfestingarbanki hf. hafði umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og fyrirhugaðri töku þeirra til viðskipta á markaði.
Nánari upplýsingar:
Ólafur Stefánsson, netfang: olafurs@reykjastraeti.is
Ólafur Þór Jóhannesson, netfang: olafur@tgverk.is
Arnar Geir Sæmundsson, markaðsviðskiptum Fossa fjárfestingarbanka, sími: 522 4008, netfang: arnar.saemundsson@fossar.is