Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem tveir flokkar voru boðnir til sölu.
Sex tilboð að fjárhæð 1.160m. kr. að nafnverði barst í flokkinn LBANK CB 25 á ávöxtunarkröfunni 5,78%-5,83%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.
Tíu tilboð að fjárhæð 1.060 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 27 á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,72%-5,76%. Tilboðum að fjárhæð 820 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 5,74%. Heildarstærð flokksins verður 5.360 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.
Uppgjörsdagur er 13. apríl 2022.
Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A- með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.
Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, Fjármögnun Landsbankans - Landsbankinn.
